Áhersluþættir leikskólans eru málörvun, hreyfing og skapandi starf í gegnum leik.
Einnig er lögð áhersla á samskipti og þess að njóta samvista með öðrum,
að gefa börnum færi á að tjá hugsanir og hugmyndir eftir fjölbreyttum
leiðum og styrkja sjálfsmynd þeirra. Við viljum að traust, umhyggja og
jákvæðni einkenni samskipti á milli allra sem að leikskólanum koma.