Álfatún orðinn Réttindaskóli UNICEF
Athöfnin fór fram í blíðskaparveðri og tóku börnin virkan þátt í henni. Hver deild valdi sér lag til að syngja og alls fluttu börnin fimm lög við góðar undirtektir. Að söngnum loknum afhenti Unnur frá UNICEF okkur fánann ásamt viðurkenningunni og í framhaldinu var fáninn dreginn að húni við leikskólann.
Við erum afar stolt af þessum mikilvæga áfanga. Að vera Réttindaskóli UNICEF felur í sér að réttindi barna eru höfð að leiðarljósi í daglegu starfi leikskólans og að raddir barnanna fái að heyrast.
Í hádeginu var síðan haldið áfram að fagna þessum gleðilega degi með grilluðum pylsum úti í góða veðrinu. Dagurinn var einstaklega ánægjulegur og mun lifa lengi í minningu barna og starfsfólks.
Við óskum börnum, starfsfólki og fjölskyldum Álfatúns innilega til hamingju með þennan merka áfanga.