Útskrift elstu barnanna.

Þann 4. júní var útskrift elstu barnanna. Þau buðu foreldrum í heimsókn og settu upp leiksýningu af því tilefni. Leikritið sömdu þau í samvinnu við starfsfólk og var það um vináttu, lausnaleit, barnasáttmálann og tilfinningar, en það hafa verið leiðarljós í starfi deildarinnar þennan vetur.

Sýningin vakti mikla ánægju meðal gesta og stóðu börnin sig einstaklega vel. Að henni lokinni var notaleg stund þar sem foreldrar, börn og starfsfólk nutu samverunnar og fögnuðu lokum þessa kafla áður en ný ævintýri taka við.
Við óskum útskriftarbörnunum innilega til hamingju með áfangann og þökkum fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum árum. Við óskum þeim alls hins besta á komandi skólagöngu.