Börnin nutu sín í snjónum
Meðal þess sem þau bjuggu til voru snjókarlar og snjókerlingar í ýmsum stærðum og gerðum. Sumir fengu augu, nef og hatta á meðan aðrir voru skreyttir með prikum og steinum sem fundust á svæðinu. Sköpunargleðin var mikil og börnin unnu saman, hlógu og nutu þess að vera úti í ferska loftinu.
Snjóleikurinn vakti mikla gleði og áhuga hjá börnunum og var gaman að sjá hversu hugmyndarík þau voru við að skapa sína eigin snjókarla og snjókerlingar.