Nýtt skólaár

Nýtt skólaár er hafið og því fylgja nýjar áskoranir. Ný börn koma og aðlagast leikskólanum í rólegheitum. Þau eru mistilbúin en þessu tímabili fylgir alltaf eftirvænting hjá okkur að fá að kynnast nýjum einstaklingum. Börnin sem eru fyrir færa sig á milli deilda og koma glöð til baka full tilhlökkunar að hitta vini og félaga aftur. Framundan er því nýtt skólaár fullt af væntingum og nýjum ævintýrum.