Að loknu sumarfríi

Það komu flestir glaðir aftur eftir sumarfrí, yngri börnin sem voru að skipta um deildar þurftu reyndar smá aðlögun á nýjum stað. Núna er aðlögun á yngri deildum og við tökum glöð á móti nýjum börnum og að henni lokinni byrjar vetrarstarf þar. Á efstu hæðinni er vetrarstarfið óðum að taka á sig mynd og börnin hafa notið þess að fara í vettvangsferðir í blíðunni sem hefur verið núna síðsumars.