Sumarhátið foreldrafélagsins og leikskólans
Mikil gleði ríkti þegar blásið var til sumarhátíðar. Benedikt Búálfur og Dídí mannabarn komu og sungu nokkur lög. Blaðrari kom og bjó til blöðrudýr, Grillaðar voru pylsur og boðið upp á andlitsmálun og sápukúluleik. Einnig kíktu Mikki og Mína í heimsókn. Veðrið var gott og allir nutu sín.