Barnasáttmálinn

Í vetur höfum við verið í vinnu við að innleiða Barnasáttmálann í starfinu okkar. Starfsfólk hefur farið á fyrirlestra og fengið fræðslu og í framhaldi af því unnið verkefni með börnunum í tengslum við hinar ýmsu greinar. Nýjasta verkefnið okkar er "orð sem gleðja og orð sem meiða". Markmiðið var að kynna jafnræði fyrir börnunum. Að tengja réttindi við samskipti og að kynna fyrir börnunum að þau geta haft góð og slæm áhrif á aðra.