Vinaganga.

Miðvikudaginn 8. nóvember fór elsti árgangurinn í vinagöngu með Snælandsskóla, Furugrund og Grænatúni. Við ákváðum að vera með vinagöngu hér í garðinum fyrir hina árgangana og rölta í kringum traktorinn og syngja vinalög. Þetta var hin skemmtilegasta stund.